Þetta er í níunda sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn til Íslands frá því tilkynnt var í apríl 2023 að slíkar heimsóknir yrðu heimilaðar.
USS Oregon er orrustukafbátur af Virginia-gerð. Slíkir kafbátar bera ekki kjarnorkuvopn en eru kjarnorkuknúnir. Kafbátarnir eru meðal þeirra háþróuðustu í eigu Bandaríkjamanna en 24 slíkir hafa verið teknir í notkun af sjóhernum.
Oregon var sjósettur árið 2020 og tekinn í notkun árið 2022.
Á vef Stjórnarráðsins segir að heimsóknin sé „á ábyrgð utanríkisráðuneytisins en Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd hennar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og sóttvarnarlækni í samræmi við settar verklagsreglur. Vel hefur tekist til með undirbúning og framkvæmd heimsóknanna þökk sé þéttu samstarfi og samráði hlutaðeigandi stofnana innanlands og góðu samstarfi við bandaríska sjóherinn.“