Kjaradeila flugmanna hjá Icelandair er komin á borð ríkissáttasemjara.
Samtök atvinnulífsins ákváðu fyrir hönd flugfélagsins að vísa samningaviðræðum til ríkissáttasemjara. Samningur SA og Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna rann út í lok september. Ekki hefur náðst samkomulag um nýjan samning.
Eftir að málinu var vísað áfram er ljóst að næstu skref verða á forræði ríkissáttasemjara sem stýrir viðræðunum hér eftir.