Viðburðarhaldarar tónlistardaganna Rokk í Reykjavík, sem fram fara í garði barsins Dillon í miðbæ Reykjavíkur, fundu sig knúna til að flýta dagskrá morgundagsins sem og dagskrá næstu viðburðakvölda um eina klukkustund vegna hávaðakvartana frá nærliggjandi hóteli á Laugaveginum.
Upprunalega dagskrá kvöldanna hófst klukkan 17 og stóð til klukkan 21. Þetta þótti gestum á Sand Hotel, sem er í eigu KEA hótela, einum of mikið af því góða og kvörtuðu undan hávaða.
Sorglegt og fyndið í senn
Jón Bjarni Steinsson, eigandi barsins Dillon, segir að hótelið hafi endrum og eins kvartað yfir lifandi tónlist á barnum. „Í dag fékk ég svo póst frá hótelstjóranum þar sem hann gerði athugasemd við að ég væri bara með útileyfi til klukkan átta og sagðist hafa látið viðeigandi aðila vita.“
Hann segist í kjölfarið hafa játað sig sigraðan og fært dagskrána fram um eina klukkustund til að skemmtuninni ljúki klukkan átta. „Ég nenni ekki að standa í þessu,“ segir Jón.
Jón segir að sér þyki aðstæðurnar sorglegar og fyndnar í senn. „Ég er í fínum samskiptum við hin hótelin á svæðinu. Þau bara upplýsa gestina sína,“ segir hann og áréttar að hann haldi einungis 3-5 tónleika í garði barsins á ári. „Fyrirtæki eins og KEA ætti kannski frekar að styrkja grasrótarstarf í lifandi tónlist frekar en að reyna að bregða fyrir henni fæti.“