Fyrrverandi glamúrfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Katie Price hefur vísað því alfarið á bug að til sé kynlífsmyndband af henni og eiginmanni hennar, Lee Andrews.Breska götublaðið The Sun greindi frá því að Lee hefði viðrað hugmyndir þess efnis að selja slíkt efni fyrir allt að 250 þúsund pund, jafnvirði um 43 milljóna íslenskra króna.Samkvæmt umfjöllun miðlanna á Lee, sem er 43 ára gamall og situr nú í fangelsi í Dúbaí vegna meintra svikamála, að hafa rætt við vin sinn í hljóðskilaboðum um að selja myndband sem hann sagði vera af sér og eiginkonu sinni.
Katie Price bregst við sögusögnum um kynlífsmyndband