Lögreglan hefur tekist á við fjölbreytt verkefni í dag. Á svæði lögreglustöðvar 3 sem fer með verkefni í Kópavogi og Breiðholti var haft samband við lögreglu vegna aðila sem var að borða epli í strætó. Að sögn strætóbílstjórans er slíkt með öllu óheimilt. Málið mun hafa verið afgreitt af lögreglu.
Af öðrum verkefnum má nefna að lögregla veitti aðila aðstoð eftir að hann hafði dottið á andlitið í miðborginni vegna drykkju. Eins ók lögregla öðrum aðila heim sem mun hafa verið illa til reika. Slagsmál áttu sér stað í miðbænum en málið var leyst af lögreglu. Einnig var tilkynnt um þjófnað frá verslun í miðborginni og innbrot og þjófnað frá verslun í Múlahverfinu.
Í Hafnarfirði var tilkynnt um bifreið utan vegar og við skoðun var ökumaður sofandi undir stýri vegna neyslu á kannabis. Í Breiðholti var tilkynnt um dyrabjölluat en lögregla hafði uppi á þeim seka og gerði honum að hætta að ónáða fólk. Eins átti sér stað líkamsárás í Breiðholti og er einn vistaður í fangaklefa vegna málsins og einn var færður á sjúkrahús til skoðunar.
Loks kemur fram að lögreglu barst tilkynning vegna ósættis milli aðila í Mosfellsbæ.
Samkvæmt dagbók lögreglunnar hefur mjög gott ástand verið á kjörstöðum á höfuðborgarsvæðinu og engar tilkynningar borist til lögreglu.