Landamerkjadeilur hafa löngum verið hatrammar á Íslandi en þessi deila virðist komin út yfir allan þjófabálk.
Grein Estherar er ítarleg en þar segir hún að Iðufólk hafi kosið að virða að vettugi samþykktar leikreglur, lög og reglur um lax- og silungsveiði og sýnt af sér fullkomið skeytingarleysi gagnvart til að mynda ákvörðun Ósamatsnefndar. Þá sakar Esther Morgunblaðið um að flytja einhliða fréttir af gangi mála, hvar dreginn er taumur Iðufólks og ekki hafi það einu sinni leitað andstæðra sjónarmiða þó að þar sé verið að greina frá kærum á hendur Finni.
Ester segir ganga á með kærumálum með óheyrilegum kostnaði fyrir samfélagið en 25 kærur á hendur Finni hafi verið felldar niður.
„Sá raunveruleiki blasir nú við okkur að einstaka aðilar að þessari deilu virðast hafa greiðan aðgang að fjölmiðlum – og þá helst einum tilteknum. Sá fjölmiðill hefur fjallað mikið um deiluna en látið það algjörlega ógert að kalla eftir annarri hlið en Iðufólks.“
Hrottalegar lýsingar á atganginum
Og Esther heldur áfram: „Fréttaflutningur sá hefur verið algjörlega einhliða – og ósanngjörn mynd ítrekað dregin upp af leigutaka Stóru-Laxár á síðum þess fjölmiðils,“ segir Esther áður en hún víkur að atganginum sem hlýtur að varða við lög.
„Raunin er sú að leigutakinn hefur, í tengslum við þessar deilur, verið beittur ofbeldi og hann laminn svo á honum sá – og sú árás er til á myndbandi. Brotist hefur verið inn í bifreið hans og símanum hans stolið. Skorið hefur verið á dekk undir bíl undirritaðrar og pílur fjarlægðar úr dekkjum á bíl leigutaka. Þá barst undirritaðri símtal þar sem leigutaka var hótað lífláti og honum hótað heimsóknum handrukkara. Enn fremur fengu undirrituð, leigutaki og lögmaður okkar nafnlaus bréf með dularfullu dufti inn um bréfalúgur okkar.“
Árásirnar verða kærðar
Esther segir að deilan sé fyrir lifandis löngu komin langt út fyrir öll velsæmismörk.
„Innansveitarkrónikan er fyrir löngu orðin að harmleik fyrir alla aðila málsins og er nú farin að hafa neikvæð áhrif langt út fyrir rekstur Stóru-Laxárdeildar. Svo ekki sé minnst á kostnaðinn, tímann og orkuna sem leggst á hið opinbera sem rannsaka þarf hverja tilhæfulausa kæruna á fætur annarri.
Sýn Stóru-Laxárdeildar á málið er nú sú að veiðar Iðufólks séu ólöglegar samkvæmt nýju ósamati. Gríðarlegur skaði hefur þegar verið unninn með þeim ólöglegu veiðum og óvæginni, einhliða og ósanngjarnri fjölmiðlaumfjöllun,“ segir Esther meðal annars í grein sinni.
Vísir hafði samband við Finn og hann sagði að Hilmar Gunnarsson, lögmaður á Mörkinni, hefði kærur í vinnslu og hann gerir ráð fyrir því að þær verði lagðar fram. „Eftir einhliða og rangar frásagnir Iðufólks í Morgunblaðinu var tekin ákvörðun um að kæra,“ segir Finnur.
Finnur segir að sér sé brugðið: „Lögreglan kom á staðinn og tók mynd af áverkunum.“