Kona og maður frá Spáni, þau Jose Manuel Del Bosque, fæddur árið 1998, og Cristina Rodriguez Santos, fædd árið 1996, hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.Þau eru sökuð um að hafa flutt til landsins 18,346 kg af kókaíni með styrkleika rúmlega 81-83%. Efnin fluttu þau hingað til lands, hvort í sinni ferðatöskunni, sem farþegar í flugi frá Frankfurt til Keflavíkurflugvallar, þann 27. maí síðastliðinn.Hér er um að ræða afar mikið magn af sterkum fíkniefnum og miðað við fordæmi mega þau Jose og Cristina búast við margra ára fangelsi.
Jose og Cristina geta átt von á margra ára fangelsi