Á fundi sveitastjórnar Langanesbyggðar sem nú stendur yfir var ákveðið að ráða Jón Hróa Finnsson sem sveitarstjóra. Staða sveitarstjóra Langanesbyggðar hafi verið laus til umsóknar frá því skömmu eftir kosningar í vor. Þá lét Björn S. Lárusson af störfum sem hafði gegnt starfinu í fjögur ár.
Í fyrstu atrennu var enginn umsækjandi sem uppfyllti kröfur Langnesinga eins og fram kom í fréttum RÚV í júlí.
Í samtali við fréttastofu þá sagði Sigurður Ragnarsson, formaður byggðarráðs, að þeir myndu leita að rétta aðilanum í starfið og nú virðist hann vera fundinn. Jón Hrói var áður sveitarstjóri í Þingeyjarsveit en hætti þar árið 2023.