Jón Gunnlaugur Sigurjónsson er fallinn frá

Mynd: Shutterstock
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson vélfræðingur lést í Glerárdal 16. júlí síðastliðinn. Hann fæddist á Akureyri 4. desember 1965.
Akureyri.net greindir frá andláti hans
Jón, sem jafnan var kallaður Gulli, ólst upp á Akureyri og stundaði nám við Verkmenntaskólann á Akureyri áður en hann lauk námi í vélfræði frá Vélskóla Íslands.
Gulli var einn stofnenda Kælismiðjunnar Frost og starfaði þar allt til dauðadags. Starfið leiddi hann víða, bæði um Ísland og erlendis.
Síðustu ár var Gulli virkur félagi í Björgunarsveitinni Tý á Svalbarðseyri og lagði mikla vinnu í uppbyggingu sveitarinnar.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.