Leikarinn John Goodman hefur vakið mikla athygli fyrir mikla breytingu á útliti sínu en hinn 74 ára gamli Hollywood-leikari er talinn hafa misst um 90 kíló á undanförnum árum.Goodman, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á borð við The Big Lebowski og Argo, hafði glímt við ofþyngd stóran hluta ævinnar. Þegar hann var sem þyngstur er talið að hann hafi verið tæp 180 kíló og hefur hann því misst um helming líkamsþyngdar sinnar.Árangurinn kom þó ekki á einni nóttu eins og fram kemur í umfjöllun VT.co.
John Goodman nær óþekkjanlegur eftir svakalegt þyngdartap