Hárgreiðslustofa hans, John Frieda Salon, greindi frá andlátinu á samfélagsmiðlum í nótt.
„Það er með sorg í hjarta sem við greinum frá þeim fréttum að elskulegur John okkar féll frá friðsamlega umvafinn fjölskyldu sinni,“ sagði í tilkynningunni.
„John var meira en bara lærimeistari fyrir okkur, hann var sannkölluð goðsögn í hárbransanum. Hann var manneskja sem kenndi okkur allt saman, trúði á okkur og gerði okkur betri. Hvíl í friði, John. Þú verður í hjörtum okkar að eilífu.“
Þrír ættliðir hárgreiðslumanna
John Frieda fæddist í Lundúnum árið 1951, skírður Alan Howard Frieda. Faðir hans var hárgreiðslumaður sem átti rakarastofu í Ealing í vesturhluta Lundúna og afi hans hafði jafnframt verið rakarari á hinu sögulega Fleet-stræti. John byrjaði ungur að vinna hjá föður sínum og gekk síðar til liðs við stjörnuhárgreiðslustofuna House of Leonard þar sem hann vann sem aðstoðarmaður Leonard Lewis.
Frieda vann síðar fyrir tískutímaritin British Vogue og Harper's Bazaar. Árið 1976 opnaði Frieda í miðborg Lundúna sína eigin hárgreiðslustofu sem varð gríðarvinsæl og uppbókuð marga mánuði fram í tímann. Samhliða því óx orðspor Frieda sem hárgreiðslumanns og stílista. Hann opnaði í kjölfarið fleiri hárgreiðslustofur víða um heim, meðal annars á Barbados, Ibiza og í Los Angeles.
Á níunda og tíunda áratugnum dró Frieda úr hárgreiðslustörfum sínum og einblíndi á að þróa sínar eigin hárvörur, þar á meðal Frizz-Eare-hárserum sem hann bjó til 1988. Fyrirtæki hans varð hratt umfangsmikið og árið 2002 seldu hann og viðskiptafélagi hans, Gail Federici, fyrirtækið til japanska efnarisans Kao fyrir 334 milljónir punda (um 55 milljarða króna).
Frieda var giftur söngkonunni Lulu frá 1977 til 1990 og eignuðust þau einn son saman, leikarann og athafnamanninn Jordan Frieda. Hann giftist Frances Avery Agnelli, ekkju Fiat-erfingjans Giovanni Agnelli, og átti með henni tvö börn og eina stjúpdóttur.