MAGA-áhrifavaldurinn Melissa Rein Lively hefur játað fyrir dómi að hafa ráðist á konu í neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum í fyrra.
Tvær systur voru á ferð um neðanjarðarlestarstöð í borginni með börn sín, þar af eitt í barnavagni, þann 11. október í fyrra þegar Lively togaði fast í hár annarrar konunnar, eftir að hún hrasaði um barnavagninn.
910 pund í bætur
Saksóknari sagði fyrir dómstólnum í Westminster að embættið hefði samþykkt skilyrta áminningu.
Í henni fólst meðal annars að greiða 910 pund í bætur, sem samsvarar um 150 þúsund íslenskum krónum.
Skilyrt áminning er valkostur við saksókn þar sem gerandi játar sök og samþykkir að uppfylla ákveðin skilyrði.