Þetta segir í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálftar eru sagðir algengir á þessu svæði en þetta sé stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá 18. ágúst 2025 þegar skjálfti mældist 3,8 að stærð. Brennisteinsfjöll eru einnig þekkt sem Bláfjöll.
Veðurstofan minnir á leiðbeiningar um varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta sem Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefur út.