Upp úr klukkan fimm í morgun hófst jarðskjálftahrina um 60 kílómetrum suðvestur af Eldey.
Nokkrir skjálftar um og yfir 3 að stærð hafa mælst í hrinunni. Þeirra stærstur var skjálfti af stærðinni 3,4 sem varð laust fyrir klukkan hálf sex.
Í athugasemd jarðvísindamanns sem birt er á vef Veðurstofunnar segir að skjálftar af svipaðri stærð séu algengir á þessu svæði.