Frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að leggja niður jafnlaunavottun samþykkt á Alþingi í dag. Nýtt og einfaldara kerfi verður sett á laggirnar og í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að með lögunum sé verið að koma til móts við ábendingar frá atvinnulífinu um einfaldara kerfi.
Áfram verður lögð áhersla á að tryggja jöfn laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Í nýja kerfinu verður ekki gerð krafa um jafnlaunavottun heldur verður gerð skýrslugjöf á þriggja ára fresti.
„Atvinnurekendur þurfa því að sýna áfram reglulega og með áreiðanlegum hætti fram á að launakerfi þeirra uppfylli kröfur jafnréttislaga sem er mikilvægur þáttur í því að viðhalda raunverulegu launajafnrétti en með mun einfaldari hætti.“ Segir í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Gert að skila tímasettri úrbótaáætlun
Lögin gera ráð fyrir að fyrirtæki eða stofnanir með 50 eða fleiri starfsmenn skili tilgreindum gögnum til Jafnréttisstofu.
Gögnin eiga að sýna fram á að launasetning fyrirtækja og stofnana byggi á málefnalegum sjónarmiðum og að þau viðmið feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Verði kynbundins launamunar vart er atvinnurekendum gert að skila inn svokallaðri úrbótaáætlun, í henni á að koma fram hvernig launamunur verði leiðréttur.
Árangur nýju löggjafarinnar verður metinn af ráðherra á þriggja ára fresti. Hann verður mældur með launarannsókn ásamt reglubundnum viðhorfskönnunum.