Ísraelsher segist hafa hæft hernaðarleg skotmörk í árás á vestur- og miðhluta Írans.
Íranskir ríkismiðlar segja sprengingar hafa heyrst í þremur borgum, höfuðborginni Tehran, Tabriz og Isfahan.
Engar upplýsingar voru gefnar um mannfall eða umfang skemmda. Íranski byltingarvörðurinn segir árásirnar hafa verið gerðar með flugskeytum sem skotið var úr lofti.
Í frétt BBC segir að ekki hafi verið gerðar árásir innan þéttbýlismarka Tehran.
Fyrr í kvöld gerði Íransher flugskeytaárás á norðurhluta Ísraels. Sú árás var svar við árás Ísraelshers á Beirút. Það var fyrsta árás Írana á Ísrael síðan samið var um vopnahlé í apríl.
Trump sagði Netanjahú að svara ekki fyrir sig með árásum
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði eftir árás Írana að hann hefði sannfært Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels um að ráðast ekki á Íran í hefndarskyni.
Trump sagði Ísraela verða að sætta sig við niðurstöðu samningaviðræðna milli Írans og Bandaríkjanna um frið. Það væri hann sem réði för en ekki Netanjahú.
Trump sagði í samtali við Fox News að Bandaríkin hefðu ekki verið höfð með í ráðum þegar Ísraelsher réðst á Beirút. Hann væri óánægður með árásina.
Enn staðráðinn í að semja
Bandaríkjamenn og Íranar náðu samkomulagi um vopnahlé í byrjun apríl. Síðan þá hefur ekki komið til harðra átaka en segja má að það hafi hitnað í kolunum um helgina. Hormússund er enn svo gott sem lokað fyrir skipaumferð og Bandaríkin hafa einnig verið með íranskar hafnir í herkví.
Samninganefndir þjóðanna hafa fundað með milligöngu Pakistana en enn virðist langt í að samið verði um frið. Trump sagði í kvöld að árásir Írana hefðu ekki haft áhrif á vilja sinn til að semja við Írana.