Ísraelsher gerði árásir í Beirút í Líbanon í dag. Árásirnar beindust að tveimur íbúðum í byggingum í suðurhluta borgarinnar.
Í yfirlýsingu ísraelska hersins segir að eftir eldflaugaárásir Hezbollah-samtakanna á borgaraleg skotmörk í Ísrael hafi Ísraelsher ákveðið að svara með árás á eina af stjórnstöðvum samtakanna.
Fyrr í vikunni kynntu líbanskir og ísraelskir sendiherrar vopnahléssamkomulag þar sem þess var krafist að árásum Hezbollah linnti og að hópurinn hörfaði frá landamærum Ísraels. Samtökin höfnuðu samkomulaginu og kröfðust þess að Ísraelar yfirgæfu líbönsk yfirráðasvæði.