Íslendingar eiga ekki að þykjast vera of fínir til að íhuga hvort aðild að Evrópusambandinu sé valkostur fyrir Ísland því að sjálfsögðu hljóti hún að vera það. Það sé svo allt annar handleggur hvort það sé besti kosturinn sem völ er á.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sat á Alþingi í tíu ár og sagði af sér þingmennsku í apríl. Hún tekur á næstunni við sem sendiherra Íslands í London. Á tíu ára þingtíma var hún ráðherra í sjö ár, þar á meðal utanríkisráðherra, og varaformaður Sjálfstæðisflokksins í sjö ár.
Hátíðarræða á Skálholtshátíð
Þórdís Kolbrún flutti hátíðarræðu á Skálholtshátíð um helgina og fór þar vítt og breitt yfir stöðu alþjóðamála, stríðsátök og útþensluóra svokallaðra sterkra leiðtoga sem væri uppskrift að hörmungum. Og hún fjallaði um Evrópusambandið og sagði orðrétt:
Einna bestu lífskjör og mest frelsi innan ESB
„Hvort sem okkur geðjast að Evrópusambandinu eða ekki og hvort sem við teljum að Ísland eigi erindi að ganga alla leið inn í það samstarf þá verður ekki framhjá því litið að þar inni eru 27 frjálsar og fullvalda þjóðir sem bjóða upp á einna bestu lífskjör og mest frelsi sem þekkist á byggðu bóli,“ sagði Þórdís Kolbrún á Skáholtshátíð um helgina.
Í hvorugri afstöðunni felast svik
Og áfram hélt Þórdís Kolbrún orðrétt varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald viðræðna sem fram fer 29. ágúst. „Við skulum því ekki þykjast vera of fín til þess að íhuga hvort slík aðild sé valkostur fyrir Ísland. Að sjálfsögðu hlýtur hún að vera það. Það er svo allt annar handleggur hvort við teljum það vera besta kostinn sem völ er á. Því þurfa allir Íslendingar að fá næði til þess að velta fyrir sér og meta. Hvorug afstaðan er fáránleg og í hvorugri afstöðunni felast svik,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra á Skáholtshátíð síðastliðinn sunnudag.