Betra er fyrir lönd að vera með sæti við borðið heldur en fyrir utan Evrópusambandið, að mati utanríkisráðherra Austurríkis. Hún telur Ísland í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu.
Með sæti við borðið
Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hittust á fundi í utanríkisráðuneytinu í dag. Þær ræddu meðal annars tvíhliða samband Íslands og Austurríkis, norðurslóðir og innrásarstríðið í Úkraínu. Evrópumálin bar einnig á góma.
Meinl-Reisinger segir þjóðirnar tvær ólíkar en eigi samt margt sameiginlegt. Austurríki gekk í Evrópusambandið 1995. Hún segir mikinn mun á því að vera hluti af EES eða í Evrópusambandinu.
„Þið eruð með sæti við borðið. Þið tækjuð þátt í að móta þær reglur sem þarf að hlýða. Ég myndi telja afar ákjósanlegt að hafa slíkt vægi í svo mikilvægum málum.“
Stækkun ESB öflugt verkfæri
Hún segir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu sterka þrátt fyrir smæð.
„Þið eruð í sterkri stöðu núna því Evrópusambandið, framkvæmdastjórnin og aðildarríkin skilja nú að stækkun sambandsins er öflugt og mikilvægt verkfæri í landfræðilegri stefnumótun.“
Í breyttum heimi dagsins í dag vilji stórveldi koma hagsmunum sínum á framfæri á ýmsan hátt. Til dæmis með pólitískum þrýstingi eða hervaldi.
„Þess vegna er það, í samhengi landfræðilegrar stefnumótunar, einnig í þágu Evrópusambandsins og aðildarríkjanna, að þið gangið kannski aftur til aðildarviðræðna og ákveðið síðan að ganga í sambandið. Það er fullveldisákvörðun. Þið eruð í sterkri samningsstöðu, það er mín skoðun.“