Íris hefur frá því í febrúar verið staðgengill sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps. Hún var áður verkefnastjóri stjórnsýslu.
Íris mun fara í fæðingarorlof í haust en þá mun Björn Ingimarsson, fyrrverandi sveitarstjóri Múlaþings, taka við. Ráðningarnar voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku.