Bandaríkjamenn réðust á borgaralega innviði í Íran í nótt. Íranski byltingarvörðurinn svaraði með árásum á bandarísk skotmörk víða um Mið-Austurlönd.
Íranar segja Bandaríkjaher hafa ráðist á brýr, lestarstöð, flugvöll og raforkumannvirki í nótt. Sjö hafi verið drepnir í árásum á Hormozgan-hérað í suðurhluta landsins.
Herstjórn Bandaríkjanna, CENTCOM, segir árásunum ætlað að draga enn frekar úr hernaðargetu Írans.
Íranski byltingarvörðurinn gerði gagnárásir á ratsjárstöðvar Bandaríkjanna í Óman og skotmörk í Kúveit og Bahrein. Þá segist byltingarvörðurinn einnig hafa ráðist á stjórnstöð bandarískra hersveita í Sýrlandi og orrustuþotur Bandaríkjamanna í Jórdaníu.
Bandaríkin og Íran takast enn á um yfirráð yfir Hormússundi, einni mikilvægustu siglingaleið heims fyrir olíuflutninga. Átökin hafa stigmagnast og undanfarnar sex nætur hafa ríkin gert árásir á víxl á skotmörk í Mið-Austurlöndum.
Utanríkisráðherrar Kína og Pakistans hvetja ríkin til að hætta árásum og hefja samningaviðræður að nýju. Bandaríkjaforseti hótaði fyrr í vikunni að ráðast á brýr og raforkuver í Íran sneru stjórnvöld þar í landi ekki aftur að samningaborðinu.
Volker Türk, yfirmaður mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna bendir á að árásir á almenna borgara og borgaralega innviði af ásettu ráði séu brot á alþjóðalögum.