Innflytjandi frá Kúbu þakkar Trump og hvetur fólk til að mæta fyrir utan Bandaríska sendiráðið

Yandi Nunez Martinez íslenskur innflytjandi frá frá Kúbu, hvetur fólk til að mæta kl. 10 í fyrramálið fyrir framan Bandaríska sendiráðið við Engjateig, til að sýna Trump-stjórninni stuðning í verki með því að flagga bandaríska fánanum fyrir utan sendiráðið. Yandi hefur sjálfur náð að útvega sér stóran fána eins og sjá má á myndina hér ofar. Hann þakkar fyrir allt það frábæra starf sem Bandaríkin vinna nú að til að frelsa Kúbverja frá kúbverska einræðinu.

Yandi Nunez Martinez.
„Sem frjáls Kúbumaður vil ég sýna Donald Trump stuðning og ríkisstjórn Bandaríkjanna fyrir það frábæra starf sem hún hefur unnið gegn kúbversku einræðinu,“ skrifar Yandi á Facebook síðu sína.
Hann segist taka undir með Marco Rubio utanríkisráðherra, þegar hann segir að: „eina landið í öllum heiminum þar sem Kúbverjum tekst ekki að ná árangri sé Kúba.“
Yandi segir að Kúbverjar hafi verið undir heljartökum einræðis í 67 ár eða frá árinu 1959, og að Kúbverjar bindi nú vonir um að Trump og stjórn hans takist að frelsa fólkið frá einræðisstjórninni.
Hann hvetur fólk einnig til að taka með sér Bandaríska fánann og sýna þar með kúbverjum og Trump stjórninni stuðning í verki.
Hann endar færsluna á orðunum:
"VIVA CUBA LIBRE DE COMUNISMO" á íslensku „LENGI LIFI KÚBA LAUS FRÁ KOMMÚNISMA.“
Færsluna má sjá hér neðar: