Reykjavíkurborg býður íbúum borgarinnar og fólki í verslun og þjónustu á samráðsfund þar sem öryggi í borginni verður rætt.
Þrír hafa verið handteknir í tengslum við innbrotafaraldur í miðborginni. Borgarstjóri hélt samráðsfund á þriðjudaginn þar sem aukið myndavélaeftirlit í miðborginni var meðal annars rætt.
Borgarstjóri opnar fundinn sem verður í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 17 þriðjudaginn 28. júlí.
Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum, fer með fræðsluerindi og ýmis öryggismál verða rædd, þar á meðal nágrannavarsla. Gestum stendur til boða að fá nágrannavörslulímmiða til að setja í glugga.
Fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir frá samfélagslögreglunni.