Styr hefur staðið um stöðu skólameistara við Borgarholtsskóla undanfarin misseri. Fyrrum skólameistari, Ársæll Guðmundsson, vann sinn síðasta vinnudag í lok mars þessa árs. Honum hafði verið tilkynnt í byrjun desember 2025 af þáverandi menntamálaráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni, að staðan hans yrði auglýst, þvert á allar hefðir.
Í tilkynningu til starfsfólks sagði Ársæll þá að honum þætti ljóst hvað stæði að baki ákvörðun ráðherrans en hann hafði mánuðina á undan haldið úti gagnrýni á áform ráðherra um breytingar á framhaldsskólastigi. Guðmundur Ingi var á þessum tíma varaformaður flokksins en Ársæli hafði áður lent saman við formann Flokks fólksins, Ingu Sæland, í skómálinu fræga. Vísir sagði frá því í lok janúar síðasta árs að Inga, þá félagsmálaráðherra, hefði hringt til Ársæls og haft í hótunum við sig vegna týnds skópars. Skórnir voru í eigu barnabarns hennar sem var nemandi við skólann.
Ásta Laufey hafði síðustu mánuði starfað sem settur skólameistari. Þar á undan starfaði hún við skólann í yfir 25 ár sem kennari, verkefnastjóri mannauðsmála og aðstoðarskólameistari.
Ásta Laufey er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun og meistaragráðu í ensku auk kennsluréttinda frá sama skóla. Hún lauk grunnnámi í ensku við Háskóla Íslands.