Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Frá þessu greindi Inga í samtali við Vísi en hún segir ýmislegt hafa valdið því að hún skipti um skoðun í málinu, svo sem upplýsingaóreiða og yfirgengilegar falsfréttir.„Mig langar að sjá samninginn og svo getum við sagt nei,“ sagði Inga sem telur rétt að skoða hvernig samningurinn gæti litið út fyrir Ísland og taka svo afstöðu út frá því.
Inga sagði já - „Mig langar að sjá samninginn, og svo getum við sagt nei“