Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur birt áform um breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum úr bókstöfum í tölustafi í samráðsgátt.
„Mennta- og barnamálaráðherra áformar að breyta námsmati í grunnskólum með því að skipta úr bókstöfum yfir í tölur. Áformin fela það í sér að skilgreindur verði tölukvarði í stað bókstafakvarða og að tölukvarðinn verði lagður til grundvallar við lokaeinkunnir í skyldunámi. Ráðgert er að allar lokaeinkunnir verði settar fram í tölum og að notkun tölukvarða verði skyldubundin við lok 4., 7. og 10. bekkjar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins um áformin.
„Með breytingunni er stefnt að því að gera námsmat skýrara og auðskiljanlegra fyrir nemendur og foreldra, án þess að draga úr faglegu hlutverki kennara eða mikilvægi fjölbreyttra matsaðferða í skólastarfi líkt og núgildandi aðalnámskrá kveður á um.“
Endurspegla víðtæka umræðu
„Áformin endurspegla þá víðtæku umræðu sem hefur átt sér stað um námsmat í grunnskólum og hvort núverandi einkunnakerfi þjóni nemendum, foreldrum og skólum nægilega vel. Meginmarkmiðið er að námsmat verði skýrara og að það styðji betur við nám, framfarir og námsframvindu nemenda,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
„Með sameiginlegum tölukvarða er stefnt að því að skapa aukinn sameiginlegan skilning á stöðu nemenda, væntingum og námsframvindu. Slíkur skýrleiki getur styrkt samtal milli nemenda, foreldra og skóla og stuðlað að auknu trausti á námsmati í grunnskólum.“
Morgunblaðið og mbl.is hafa, í ítarlegri umfjöllun sinni um menntamál, meðal annars fjallað ítrekað um einkunnagjöf í grunnskólum. Um miðjan síðasta áratug var henni breytt þannig að lokaeinkunn úr 10. bekk væri gefin í bókstöfum.
Stefnubreyting ráðuneytisins kemur þannig í kjölfar ítrekaðra frétta af víðtækri óánægju með ríkjandi kerfi.