Forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, Gianni Infantino, ætlar ekki að segja af sér sem forseti sambandsins.
Leiðtogahópur FIFA sendi frá sér yfirlýsingu eftir krísufund sem haldinn var með Infantino á skrifstofum FIFA í Rabat í Marokkó í gær. Í yfirlýsingunni segir að Infantino njóti fulls trausts þeirra sem kjörinn leiðtogi aðildarsambandanna 211 sem eru í FIFA.
Leiðtogahópurinn viðurkennir ákveðin mistök eftir að upplýsingar um hugmyndir Infantinos um að stofna dótturfyrirtæki FIFA sem yrði að hluta í eigu einkaaðila, láku í fjölmiðla.
Í yfirlýsingunni segir að það hafi ekki verið markmiðið að útiloka FIFA-ráðið og aðildarfélög FIFA frá undirbúningsferlinu og það hefði átt að standa betur að því. FIFA-ráðið og aðildarfélög voru beðin afsökunar sérstaklega og því heitið að svona mistök endurtækju sig ekki.
Hugmyndir Infantinos mættu andstöðu fjölda aðildarsambanda. Forsetinn hefur verið undir mikilli pressu síðustu daga vegna þessa og síðustu vikuna jókst þrýstingur á hann enn frekar um að segja af sér.
Hann virðist þó öruggur áfram sem forseti FIFA þar sem enn hefur enginn boðið sig fram á móti honum fyrir forsetakosningar FIFA sem fara fram í mars.