Icelandair hefur erlenda flugvél á leigu sem sinnir áætlunarflugi fyrir félagið. Flugvélin er í eigu litáeska flugfélagsins Heston Airlines en Icelandair leigir áhöfn með henni.
Icelandair hefur haft litáísku vélina á leigu frá 3. júní og verður með hana á leigu fram yfir 8. júní segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Flugvélin hafi verið tekin á leigu vegna seinkunar á afhendingu á Airbus-flugvél frá framleiðanda. Það sé hluti af eðlilegum flugrekstri að grípa til slíkra ráðstafana. Þá segir Guðni leigu flugvélarinnar og áhafnarinnar ekki tengjast kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugfélagsins með nokkrum hætti.
Nokkrum tugum flugferða á vegum Icelandair hefur verið aflýst á síðastliðnum vikum sökum þess að ekki hefur tekist að manna áhafnir. Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir félagið ekki í verkfallsaðgerðum, hvorki formlegum né óformlegum.