Íbúum á Íslandi fjölgaði um 520 á fyrsta ársfjórðungi og hlutfallslega mest á Suðurlandi, eða um 1,1%. Fjölgun var í öllum kjördæmum landsins, nema á Norðurlandi Vestra, þar sem íbúum fækkaði um 0,4%. Á Skagaströnd fækkaði íbúum um 5, eða um 1,1% og hefur íbúum þar farið fækkandi síðan 2021. Mesta fækkunin var í Skagafirði þar sem íbúum fækkaði um 12.
„Ég er ekkert mjög áhyggjufullur yfir þessu núna. Við höfum áður séð sveiflur innan ára og ef þú myndir tala við í mig aftur í lok árs og það væri áfram fækkun hefði ég áhyggjur af þessu,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar.
Norðurland vestra undir landsmeðaltali
Ef horft er aftur til ársins 2019 hefur íbúum á Norðurlandi vestra fjölgað, en aðeins um 351 eða um 4,85%. Er það töluvert undir landsmeðaltali.
„Ég hef meiri áhyggjur af því að þó það hafi verið hægfara fjölgun bæði í Skagafirði og landshlutanum undanfarin ár þá þyrftum við að vera nær því sem gerist í landsmeðaltali,“
Að sögn Sigfúsar er atvinnuleysi með lægsta móti í Skagafirði og sveitarfélagið hefur brugðið á það ráð að semja við Bríeti leigufélag um uppbyggingu leigumarkaðar á svæðinu til að laða að íbúa.
„Gagnvart landshlutanum Norðurlandi vestra þá þyrfti bæði atvinnulíf og stjórnvöld að horfa til landshlutans með einhverjum aðgerðum til að lyfta honum upp - það þyrfti að vera raunveruleg byggðastefna hér í verki.“