Engar nánari upplýsingar er að finna um málið nema að atvik virðast hafa átt sér stað í póstnúmerinu 111.
Tveir einstaklingar voru handteknir í 105 fyrir þjófnað, brot á lögreglusamþykkt, vörslu fíkniefna og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Þá voru þrír ökumenn handteknir í 105 og 108 fyrir akstur undir áhrifum. Einn reyndist með fíkniefni á sér.
Einn var handtekinn í Hafnarfirði fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og annar kærður fyrir að stinga af frá umferðaróhappi. Þá var einn kærður í Kópavogi fyrir að virða ekki gangbrautarétt en sá ók á hjólandi vegfaranda.
Einn var handtekinn í 111 fyrir að aka undir áhrifum og án ökuréttinda og þá var hann einnig kærður fyrir skjalafals.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.