Landsréttur framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni og íkveikju og hótanir í garð eiginkonu sinnar. Hann er einnig grunaður um að beita opinbera starfsmenn ofbeldi og hóta þeim.
Maðurinn liggur undir grun vegna ítrekaðra brota gegn eiginkonu sinni allt frá því lögregla var fyrst kölluð til í febrúar 2024 þar til hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald 4. janúar. Kona mannsins hefur lýst miklum ótta við manninn og telur að hann endi á að drepa hana.
Maðurinn hefur verið ákærður og réttað yfir honum en dómur var enn ekki fallinn þegar gæsluvarðhaldið var framlengt í gær. Hann sætir gæsluvarðhaldi til 15. maí að óbreyttu.
Maðurinn sótti um alþjóðlega vernd í febrúar 2023 en var synjað í mars sama ár. Hann fór þá til heimalands síns en kom aftur skömmu síðar og hafði þá gengið í hjónaband. Hann fékk dvalarleyfi hér á landi á grundvelli hjónabandsins.
Lögregla segir manninn hafa sterk tengsl við heimaland sitt og mikla hættu á að hann reyni að komast úr landinu ef hann gengur laus.
Í úrskurði um gæsluvarðhald yfir manninum er vísað til fjölda brota hans gegn eiginkonunni. Þar á meðal eru líflátshótanir, barsmíðar og spörk, skemmdarverk á heimili þeirra og ítrekuð brot gegn nálgunarbanni. Hann hringdi ítrekað í konuna úr gæsluvarðhaldi þrátt fyrir nálgunarbann. Einnig er greint frá því að leigubílstjóri hafi óskað eftir aðstoð lögreglu þegar maðurinn henti konunni út úr leigubílnum og beitti hana ítrekuðu og alvarlegu ofbeldi.
Þegar maðurinn var handtekinn að lokum mun hann hafa öskrað að hann ætlaði að drepa eiginkonuna.