Síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar, áður Stöðvar 2, var sendur út í kvöld. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, sagði daginn hafa verið tilfinningaríkan.
„Að lesa tímann var mögulega aðeins erfiðara en venjulega,“ segir Kolbeinn Tumi sem sagði að styttra hefði verið í tilfinningar og tár en yfirleitt.
„En mikill heiður og það hefur verið mikill heiður að lesa hvern einasta fréttatíma sem ég hef lesið hérna,“ segir hann.
Hann segir að hugur hans og annarra sé hjá þeim starfsmönnum sem breytingarnar höfðu áhrif á. 10 starfsmönnum var sagt upp í tengslum við breytinguna.
„Við erum þéttur hópur og það er erfitt að missa mjög gott fólk sem hefur skilað frábæru starfi,“ segir Kolbeinn Tumi.
Það þarf tvö lið til að spila fótbolta
Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð fréttastofu Sýnar síðustu mánuði.
Í mars var tilkynnt að Ásar hf., sem áður hétu Síminn, hefðu náð samkomulagi við Sýn um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar, meðal annars Vísi og Bylgjunni. Kaupverðið var sagt rúmir fimm milljarðar króna.
Kaupin gengu hins vegar ekki í gegn þar sem ekki náðist samkomulag milli félaganna eftir áreiðanleikakönnun.
„Þetta eru fjörutíu ár þar sem við höfum staðið vaktina í fréttum og breytt leiknum,“ segir Kolbeinn Tumi. „Við gáfum ykkur samkeppni og gerum enn og ég trúi því að það sé ekki síst grátið í Efstaleiti því að það þarf tvö lið til að spila fótboltaleik og þið hafið grætt á okkur og við á ykkur.“
Sjá má kveðju Kolbeins Tuma í fréttum kvöldsins hér fyrir neðan.
Efla aðra miðla í staðinn
Kolbeinn Tumi segir ágætt að halda því til haga að fréttastofan sé að þakka fyrir sig en ekki kveðja þar sem áfram verði sagðar fréttir á vefmiðlum sínum, á vísir.is og í útvarpi á Bylgjunni.
„Í fréttum okkar áðan sögðum við takk, við sögðum ekki bless,“ segir Kolbeinn Tumi.
„Þetta er dagur þar sem við leyfum öllum tilfinningum að koma fram, svekkelsi, reiði, allur pakkinn. Þetta er þannig dagur. Svo skiljum við hann eftir og mætum á morgun og höldum áfram, blásum til sóknar og gerum flotta hluti,“ segir Kolbeinn Tumi.