Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner færði ljósbleikan lit í túrkísbláan sjóinn við Turks- og Caicoseyjar í Karíbahafinu á dögunum. Hún var stödd í þeirri paradís á dögunum í stelpufríi tengdu snyrtivörumerkinu sínu, Kylie Cosmetics.
Hún naut kvöldverðar við ströndina í afar smáu og ljósbleiku bikiníi og gegnsæju pífupilsi yfir. Hún paraði klæðnaðinn við hvíta sandala með lágum hæl, heklaða tösku og silfurlitaða eyrnalokka. Jenner stillti sér upp á ströndinni við glæsilega villu þar sem hún dvelur.
Jenner tók bleika þemað alla leið en við kvöldverðarborðið voru bleikir kokteilar, servíettur, blóm og kerti í sama lit. Dóttir hennar, Stormi, er með í för ásamt bestu vinkonum hennar og samstarfskonum.
Turks- og Caicoseyjar eru einn uppáhaldsáfangastaður Kardashian-systranna. Eyjarnar samanstanda af tveimur eyjaklösum suðaustan við Bahamaeyjar, þar sem sjórinn er tær og sandurinn hvítur. Jenner ferðaðist með einkaþotu sem hún var búin að nefna Kylie Air.

