Langar bílaraðir myndast oft, stundum alveg upp að Kögunarhóli á móts við Ingólfsfjall, þegar ökumenn og þeirra fólk í bílunum eru að fara á Selfoss eða lengra austur og er tappinn alltaf við Ölfusárbrú.
Það sem tefur líka er að það má aðeins eitt þungt ökutæki vera á brúnni í einu vegna þess hversu gömul og lúin hún er orðin. Oft þarf að bíða í 15 og jafnvel upp í 30 mínútur eftir að komast yfir brúna.
Hvað segir bæjarstjóri Árborgar, Bragi Bjarnason, um málið?
„Við verðum að sýna þolinmæði og bendum fólki líka á að nýta sér Þrengslin og þær leiðir inn í sveitarfélagið okkar þannig að þá getum við kannski létt aðeins á umferðinni,” segir Bragi.
Já, þú hvetur fólk til að fara Þrengslin?
„Já við eigum að nýta okkur það, sérstaklega svona yfir sumartímann, sérstaklega seinni part dags, þá er mjög klókt ef þú ert að fara beint inn á Selfoss eða fram hjá að fara þá leiðina. Þá dreifum við líka álaginu á brúnni,” segir Bragi.
Bragi segist vel skilja pirring ökumanna við Ölfusárbrú.
„Maður hefur nú lent í því sjálfur en þetta getur verið góður tími bara til að hlusta á góðan þátt eða podcast í eyranu, þannig að við verðum bara að vera þolinmóð þangað til að við fáum nýju brúna.”
Talandi um nýju Ölfusárbrúna, framkvæmdir við hana ganga mjög vel en hún verður þó ekki opnuð fyrr en haustið 2028. Á meðan verða raðirnar við núverandi brú.