Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

Listakonan og aðgerðasinninn Julia Mai hvetur fólk til að sniðganga tónleika bandaríska rapparans Azealia Banks í Austurbæjarbíói 3. desember. Hún tengir gagnrýni sína við það sem hún segir vera hvítþvott á þjóðarmorði og telur mikilvægt að fólk láti afstöðu sína í ljós með ákvörðunum sínum um menningarviðburði.
Í myndbandi sem hún hefur birt fjallar Julia um tónleikana og mikilvægi þess að fólk taki afstöðu til þess sem hún lýsir sem hvítþvotti á þjóðarmorði. Hún vísar til þess að slík afstaða eigi ekki aðeins við um stjórnmál heldur einnig menningu, listir, íþróttir og bókmenntir.
„Oft er talað um að það eigi að aðskilja listina frá listamanninum en þegar fólk styður Ísrael í miðju þjóðarmorði, hvernig getum við réttlætt þau orð?“ segir Julia í myndbandinu og lætur síðan skjáskot af mjög umdeildum orðum rappkonunnar fylgja.
Í myndbandinu segir hún að ekki sé hægt að líta á tónleika eða aðra menningarviðburði sem einangraða frá stærri samfélagslegum og pólitískum álitamálum. Hún hvetur fólk því til að hugsa sig um áður en það styður viðburði af þessu tagi með kaupum á miðum og mætingu.
Hætti við að koma fram á tvennum tónleikum
Tónleikar Azealia Banks eru auglýstir í Austurbæjarbíói 3. desember. Banks er bandarískur rappari og lagahöfundur sem hefur vakið athygli fyrir tónlist sína og afar umdeild ummæli í gegnum tíðina. Meðal þess sem Banks hefur látið út úr sér eru setningar á borð við „Ég er síonisti“, „Enginn svartur einstaklingur ætti að styðja Palestínu“, „Ég er í raun, sannarlega og heilshugar á móti Palestínu og öllu því sem hún reynir að standa fyrir“, „Kannski ættu Gaza-búar að hætta að fjölga sér á stríðssvæði?“ og „Ég er svo sannarlega ekki sammála sprengjuárásum á Gaza. En mér er líka alveg sama um þær.“
Banks tilkynnti að hún myndi hætta við að koma fram á bresku tónlistarhátíðunum Boomtown og Maiden Voyage í fyrra. Hún hélt því fram að skipuleggjendur hefðu þrýst á hana um að segja „Free Palestine“ og hótað að fjarlægja hana úr dagskránni ef hún yrði ekki við því.
Í færslunni notaði hún meðal annars slagorðið „#FUCKPALESTINE“. Í síðari færslu tók hún þó fram að hún væri ekki að segja „fokk raunverulegu Palestínu“ heldur væri hún að gagnrýna slagorð og það sem hún taldi vera sýndarmennsku.