„Við fórum að pæla í því hvers vegna fólk ætti að koma á völlinn sem er ekki með brennandi áhuga á fótboltaleiknum sjálfum,“ segir Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings.
Fyrir hvern fótboltaleik vinna tugir sjálfboðaliða tímum saman til að undirbúa allt sem þarf að undirbúa. Í síðasta þætti Meðal fólks var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.
„Í gamla daga var ein kirkja í hverri sókn og það fóru allir til kirkju í hverri viku. Núna er það dottið upp fyrir. Fólk fer minna til kirkju en áður, svo það vantar svona samastað,“ segir Sverrir. „Af því að Víkingur er hverfisfélag — það er bara eitt félag í okkar hverfi — þá gæti Víkingur verið kirkja.“
Hægt er að hlusta á umfjöllunina í heild sinni í spilaranum hér að neðan.