Embættismaður stjórnmálaskrifstofu uppreisnarsveita Húta í Jemen segir af og frá að dróna hafi verið beint í átt að sádiarabísku borginni Mekka, helgasta stað múslíma.
Meintar atlögur Húta að Mekka séu lúin lygi sem enginn trúi lengur. Talsmaður sameinaðra hersveita sem berjast við Húta undir stjórn Sádi Arabíu sagði í færslu á X dróna á vegum Húta hafa verið grandað áður en hann komst inn fyrir lofthelgi borgarinnar, þar sem öll flugumferð er bönnuð. Samtök íslamskra ríkja, OIC, hafa fordæmt árásina þrátt fyrir afneitun Húta og einnig viðvarandi árásir þeirra á Sádi Arabíu.