Hútar í Jemen sögðu í kvöld að þeir hefðu ráðist á tvö olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu á Rauðahafi. Hútar, sem eru hliðhollir Írönum, tilkynntu í vikunni um hafnbann á sádi-arabískar hafnir og vöruðu alþjóðleg skip við því að sigla um Rauðahafið.
Hútar ráða yfir landsvæði nærri Bab el-Mandeb-sundinu sem liggur á milli Jemens og Djíbútí. Sundið tengir saman Rauðahafið og Adenflóa og er mikilvæg siglingaleið fyrir olíu, rétt eins og Hormússund sem er hinum megin á Arabíuskaganum. Að mati sérfræðinga eru aðgerðir Húta taldar geta bætt samningsstöðu Írana.
Gæti lengt flutningstíma og aukið kostnað umtalsvert
Fimm olíuflutningaskip sneru við á Rauðahafi í dag til að forðast Bab el-Mandeb-sund. Þrjú skip til viðbótar, sem voru á leið til Kína og Indlands full af olíu, gerðu slíkt hið sama á þriðjudag.
Sádi-Arabar hafa flutt milljónir tunna af olíu á dag til hafnarborgarinnar Yanbu við Rauðahafið. Það er gert til að hægt sé að flytja olíuna án þess að skipin sigli um Hormússund. Ef umferð stöðvast um áðurnefnt Bab el-Mandeb-sund myndi flutningstími olíu til Asíu lengjast um vikur og kostnaður aukast umtalsvert. Eina leiðin væri þá um Súesskurðinn í norðri sem tengir Rauðahaf við Miðjarðarhaf.
Bandaríkin og Íran halda áfram að skiptast á árásum
Stjórnstöð bandaríska hersins greindi frá því í kvöld að herinn hefði gert árásir á Íran. Líkt og síðustu nætur eru árásirnar sagðar gerðar til að draga úr getu Írana til að ráðast á kaupskip á hafsvæðinu í kringum Íran.
Þetta er tólfta nóttin í röð sem Bandaríkjaher gerir árásir á landið.
Íranar hafa svarað árásum næturinnar með því að ráðast á bandarísk skotmörk í Kúveit. Þá sagði íranski byltingarvörðurinn í nótt að Íranar hefðu stöðvað för þriggja olíuflutningaskipa um Hormússund.