Bandaríska fjölmiðlakonan og raunveruleikastjarnan Courtney Stodden segir að leikarinn Jason Alexander, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem George Costanza í Seinfeld, hafi komið fram með óviðeigandi hætti við hana þegar hún var aðeins 17 ára.Stodden greinir frá þessu í færslu á Instagram þar sem hún rifjar upp tökur á gamanatriði fyrir þáttinn The Donny Clay Show árið 2012. Þar kom hún fram ásamt þáverandi eiginmanni sínum, leikaranum Doug Hutchison, en Alexander lék spjallþáttastjórnanda.News.co.au fjallar um málið.
Hún var 17 ára á myndinni: Sakar Seinfeld-stjörnuna um óviðeigandi hegðun