Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju - DV

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju - DV

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju - DV

Það var rólegt miðvikudagskvöld á litla kaffibarnum. Samantha var ein á vakt og það var ekki hræðu að sjá götunni í heimabæ hennar, Anchorage. Hana langaði að hringja í kærastann sinn og biðja hann að koma með mat en hún fékk sig ekki til þess því þau höfðu rifist heiftarlega kvöldið áður.

Samantha var 18 ára og í föstu sambandi. Hún var pirruð yfir að hafa ekki upplifað hvernig það er að vera ung og frjáls og hún lét kærastann finna fyrir pirringnum kvöldið áður. Hann tók því ágætlega og þau sammæltust um að taka sér smá pásu frá hvort öðru.

Hún sendi föður sínum því skilaboð og spurði hvort hann gæti komið með kvöldmat til hennar því hún ætti enn nokkrar klukkustundir eftir af vaktinni. Hún átti að loka staðnum ein eins og hún var vön að gera. Faðir hennar svaraði og spurði hvort kærastinn hennar gæti ekki fært henni mat. Samantha andvarpaði og nennti ekki að útskýra stöðu mála fyrir honum.

Samantha

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Síðan sá hún manneskju sem hallaði sér upp að bíl á bílastæðinu. Hún byrjaði að þrífa kaffivélina en heyrði þá rödd við afgreiðsluborðið. Manneskjan var komin að lúgunni. Þetta var karlmaður. Hávaxinn, í góðu líkamlegu formi, með dökkt, hálfsítt hár. Hann var dökkklæddur og með skíðagrímu.

Skíðagrímur eru ekki óalgengar í Alaska í febrúar en það er venjan að fólk taki þær niður þegar það pantar kaffi. Maðurinn pantaði Americano. Samantha hellti upp á það setti bollann fyrir framan hann. Hún sagði honum að kaffið kostaði 4 og hálfan dollara og sló töluna inn í sjóðvélina. Maðurinn stakk höndinni hægt og rólega í vasann en hann tók ekki peninga upp úr honum. Hann dró upp skammbyssu sem hann beindi að Samantha.  Hann skreið inn um afgreiðslulúguna og með einni hreyfingu var hann kominn beint fyrir framan hana.

Naut þess að drepa

Með rólegri rödd skipaði hann Samantha að slökkva ljósin. Hann sagði henni að taka alla peningana úr sjóðvélinni og setja í poka og síðan ætti hún að fylgja honum út í bílinn. Hann sagðist hlusta á talstöðvar lögreglunnar með eyrnasnigli og ef hann heyrði eitthvað myndi hann drepa hana.

Samantha var hrædd en fylgdi honum út í bíl. Maðurinn sagði henni að setjast inn og hún hlýddi. Hann ók að húsi nærri kaffibarnum og fór með hana inn í skúr í bakgarðinum. Þegar þangað var komið batt hann hendur hennar og hótaði að drepa hana og fjölskyldu hennar ef hann heyrði eitthvað um öskur í talstöðvarkerfi lögreglunnar.  Hann setti servíettur í munn hennar og límband utan um höfuðið.

Hann fór inn í húsið þar sem kærastan hans og litla dóttir sváfu. Fjölskyldan ætlaði í frí daginn eftir og hann hafði pantað leigubíl sem átti að koma klukkan fimm að morgni svo þau myndu ná fluginu. Hann hafði bara nokkrar klukkustundir þar til kærastan og dóttirin myndu vakna.

Myndir úr eftirlitsmyndavél kaffibarsins.

 

 

 

 

 

 

 

Maðurinn fór aftur út í bíl og ók að kaffibarnum. Þar fann hann farsíma Samantha og veskið hennar með greiðslukorti. Hann flýtti sér síðan aftur í skúrinn þar sem Samantha sat enn bundin. Hann hafði vínflösku meðferðis og hellti í glas fyrir sjálfan sig. Hann neyddi Samantha til að segja hver pinkóðinn hennar væri og risti hann á greiðslukortið.

Hann tók stóran vínsopa og síðan nauðgaði hann Samantha margoft. Síðan kyrkti hann hana með berum höndum á meðan hann horfði beint í augu hennar.

Það veitti honum sérstaka nautn að sjá lífið fjara út í augum hennar. Hann vafði síðan teppi um líkið og setti inn í skáp í skúrnum.

Leigubíllinn kom klukkan fimm og maðurinn og kærastann og dóttirin lögðu af stað í fríið eins og ekkert hefði gerst.

Mannránið tekið upp

Yfirmaður Samantha hringdi í lögregluna næsta dag. kaffibarnum hafði ekki verið lokað og það vantaði peninga í sjóðvélina. Lögreglan hafði samband við föður Samantha og kærsta og fékk að vita um skilaboðin sem hún hafði sent föður sínum.

Lögreglan yfirheyrði einnig nokkrar vinkonur Samantha en það kom ekki að miklu gagni. En síðan afhenti eigandi kaffibarsins lögreglunni upptökur úr eftirlitsmyndavélunum og þar sást að hún hafði verið numin á brott.

Næstu daga dreifðist fréttin um hvarf Samantha út um öll Bandaríkin og lögreglan setti rannsókn málsins í algjöran forgang. Faðir hennar hét 30.000 dollurum í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leyst málið.

Eftir tæpar þrjár vikur án þess að nokkuð heyrðist frá Samantha eða mannræningjanum fékk faðir hennar sms. Það var sent úr síma Samantha.

Krafðist lausnargjalds

Skilaboðin voru stutt og dularfull og án greinarmerkja: „Connor Park skilti undir mynd af Albert Er hún ekki falleg“.

Lögreglan fór að skiltinu við Connorgarðinn í Anchorage. Þar er minnismerki um hund að nafni Albert. Þar fann lögreglan umslag með ljósmynd af Samantha. Hún var með galopin augu, andlitsfarða og fléttur á myndinni.

Við hlið andlitsins sást karlmannshönd sem hélt á forsíðu dagblaðs frá því í vikunni áður. Með myndinni fylgdi miði þar sem sagði að fjölskylda Samantha ætti að leggja 30.000 dollara inn á reikning Samantha innan viku, þá myndi Samantha vera látin laus.

Tók út litlar upphæðir

Það var eitthvað undarlegt við myndina en lögreglan gat ekki áttað sig á hvað það var. Lögreglan sýndi föður Samantha myndina og hann sagði strax að hún myndi aldrei vera með fléttur. Annars tók hann ekki eftir neinu óeðlilegu.

Liðsmenn alríkislögreglunnar FBI lögðu til að faðir Samantha gerði eins og krafist var en að hann myndi ekki greiða alla upphæðina í einu. Þvert á móti ætti hann að leggja 5.000 dollara inn og þar með þvinga mannræningjann til að hafa samband aftur ef hann vildi fá meiri peninga. Þess utan ætlaði lögreglan að reyna að finna út hvar maðurinn myndi taka peninga út á það, þetta var gert í von um að eftirlitmyndavélar við hraðbankana myndu ná mynd af honum.

Samantha og faðir hennar.

 

 

 

 

 

 

 

Faðir Samantha gerði eins og FBI lagði til og eftir aðeins fjórar klukkustundir gerðist eitthvað. Kortið var notað til að taka 600 dollara út úr hraðbanka ekki langt frá kaffibarnum. Skömmu síðar var meira tekið út úr öðrum hraðbanka, ekki langt frá þeim fyrsta. Skömmu síðar var þriðja úttektin gerð í enn einum hraðbankanum.

Afgerandi mistök

Upptökur úr eftirlitsmyndavélum við hraðbankana sýndu mann sem líktist manninum á upptökunni frá kaffibarnum. En það var ekki mikið að sjá. Maðurinn var með grímu og í mismunandi hettupeysum sem leyndu útliti hans. Hann skipti alltaf um föt áður en hann notaði nýjan hraðbanka.

FBI fékk strax tilkynningu þegar greiðslukort Samantha var notað en það tók tíma fyrir myndirnar úr eftirlitsmyndavélunum að berast og því var maðurinn alltaf nokkrum skrefum á undan lögreglunni.

Í byrjun mars 2012, rúmlega mánuði eftir að Samantha var numin á brott, fór maðurinn að nota greiðslukortið í öðrum ríkjum. Hann færði sig suður á bóginn. Hann skipti alltaf um föt á milli úttektarstaða en síðan gerði hann mistök. Á upptöku frá hraðbanka í Texas sást hann setjast inn í hvítan Ford Focus. Lögreglunni í ríkinu var tilkynnt um þetta og beðin um að hafa augu með bílum af þessari tegund.

Að morgni 13. mars 2012 sá lögreglumaður hvítan Ford Focus á bílastæði við hótel í bænum Loftin. Hann fylgdist með bílnum úr fjarska og klukkan 11.30 sá hann hávaxinn hvítan mann, með hálfsítt hár, ganga að honum. Hann opnaði afturhlerann og setti töskuna sína í bílinn.  Síðan settist hann inn í bílinn og ók af stað. Lögreglumaðurinn fylgdi á eftir. Ökumaðurinn passaði við lýsinguna en það var eitt og sér ekki nóg ástæða til að handataka hann.

Eftir nokkurra mínútna akstur gerði ökumaðurinn mistök. Hann ók hraðar en leyfilegt var, aðeins tveimur kílómetrum, en það var nóg til að lögreglumaðurinn gæti stöðvað akstur hans á lögmætan hátt.

Lögreglumaðurinn tók skammbyssuna sína upp og nálgaðist bílinn varlega. Hann veitti því samstundis athygli að ökumaðurinn var órólegur en um leið virtist hann ótrúlega hrokafullur.

Hafði aldrei hlotið dóm

Lögreglumaðurinn skoðaði skilríki mannsins. Hann reyndist heita Israel Keyes og var 34 ára, hafði aldrei hlotið dóm og hafði gegnt herþjónustu. Hann bjó í Anchorage í Alaska.

Lögreglumaðurinn kallaði eftir liðsstyrk og alríkislögreglunni var tilkynnt um stöðu mála og fól lögreglunni að leita í bíl mannsins. Þá fundust hettupeysur, grímur, peningar, skammbyssa og greiðslukort Samantha.

Israel Keyes var handtekinn og afhentur alríkislögreglunni sem vissi ekki enn hvort Samantha væri lífs eða liðin. Ekkert hafði heyrst frá henni í tæpa tvo mánuði.

Israel Keyes

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Húsleit var gerð heima hjá Keyes og kærastan hans og ættingjar voru yfirheyrðir. Nú var kafað ofan í fortíð hans.

Hann var næstelstur af tíu systkinum. Foreldrar hans voru mjög trúaðir mormónar en kom illa saman við prestinn sinn svo þeim fannst þau tilneydd til að flytja hvað eftir annað. Síðan urðu þau hluti af kirkju sem lagði áherslu á yfirburði hvíta kynstofnsins.

Keyes lýsti sig trúleysingja þegar hann var 16 ára og varð það til þess að foreldrar hans útskúfuðu honum og bönnuðu systkinum hans að eiga samskipti við hann.

Keyes gekk í herinn. Þar fór hann að sýna áhuga á djöfladýrkun.

Að herþjónustu lokinni stofnaði hann byggingafyrirtæki í Anchorage og var með fjölda fólks í vinnu. Hann eignaðist síðan dóttur með kærustunni sinni.

Slétt yfirborð

Ekkert var að finna í skjölum sem veitti ástæðu til að fetta fingur út í neitt hjá Keyes en það passaði hins vegar ekki við þá lýsingu sem kærastan hans og fjölskylda gáfu á honum.

Þau lýstu honum sem ofbeldisfullum og óútreiknanlegum manni sem var ánetjaður áfengi og fíkniefnum. Hann gat verið virkilega sjarmerandi og traustur en svo átti hann til að hverfa í nokkra daga án þess að láta heyra frá sér. Hann hafði engan áhuga á öðru fólki og sýndi því enga umhyggju, nema dóttur sinni.

Heimili Israel Keyes

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Alríkislögreglan taldi sig vera komna með upplýsingar sem gætu nýst við yfirheyrslu yfir Keyes. Þegar hann var yfirheyrður var hann hrokafullur og yfir aðra hafinn að eiginn mati. Lögreglumennirnir bentu honum á að dóttir hans myndi alast upp við að geta lesið og glæpi föður síns á Internetinu. Þetta varð til þess að varnarstaða hans brotnaði alveg og hann féllst á að vera samstarfsfús gegn því að fjölmiðlar myndu ekki fá upplýsingar um mál hans.

Sannkallað illmenni

Lögreglumennirnir féllust á þetta en kröfðust þess um leið að hann segði satt. Til dæmis um hvar Samantha væri. Keyes hló við þetta og byrjaði síðan að tala. Hann sagði lögreglunni að hann hefði nauðgað henni og myrt nokkrum klukkustundum eftir að hann nam hana á brott.

Lögreglumönnunum fannst Keyes ógnvænlegur á allt annan hátt en þeir höfðu upplifað áður. Illur grunur sótti að þeim – hafði hann fleiri morð á samviskunni fyrst hann gat á svo kaldrifjaðan hátt myrt 18 ára konu?

Og þessi grunur reyndist á rökum reistur. Þeir höfðu handtekið einn hættulegasta raðmorðingjann í bandarískri sögu og einn þann ósýnilegasta.

Keyes byrjaði á að lýsa morðinu á Samantha. Hann sagðist hafa fylgst með kaffibarnum dögum saman. Hann valdi hann af því hann var sá eini sem hafði opið fram eftir kvöldi og af því að stúlkurnar voru oft einar við lokun. Hann sagðist aðeins hafa ætlað að ræna peningum.

Í miðju ráninu sagðist hann hafa fyllst ótta um að Samantha gæti borið kennsl á hann og því hafi hann drepið hana og geymt líkið í skúrnum þangað til hann kom heim úr fríi. Hann sagðist síðan hafa fengið hugmyndina um að krefjast lausnargjalds, þrátt fyrir að hún væri dáin. Það gæti hann gert með því að snyrta hana aðeins.

Þegar hann kom heim úr fríi, keypti hann andlitsfarða og byrjaði að undirbúa töku ljósmyndar sem átti að láta Samantha líta út fyrir að vera lifandi. Hún hafði þá verið dáin í 14 daga en líkið hafði verið í kælingu enda vetur.

Hann setti andlitsfarða á hana og fléttaði hárið. Hann notaði öngla til að halda augunum opnum. Síðan fann hann dagblað frá þeim tíma þegar hann var í fríi og notaði það sem sönnunargagn. Að þessu loknu sagaði hann líkið í búta með vélsög og fór síðan og gerði vök á ísilagt vatn og henti líkamshlutunum niður um hana.

Líkið í vatninu

Kafarar alríkislögreglunnar komust fljótlega að því að Keyes var að segja satt þegar þeir fundu líkamshluta í vatninu.

Lögreglan ákvað nú að kanna kenningu sína og spurði Keyes beint út hvort hann hefði myrt fleiri en Samantha – „Ertu raðmorðingi?“

Keyes, sem virtist njóta athyglinnar játaði því. Hann sagðist alltaf hafa litið upp til raðmorðingja en hafi áttað sig á því ungur að árum að hann mætti aldrei nota sömu morðaðferðina aftur, hann yrði alltaf að skipta um aðferð til að lenda ekki í kastljósi lögreglunnar.

Hann fór því til annars ríkis, leigði bíl og ók mörg hundruð kílómetra í leit að fórnarlambi sem hann gæti drepið bara til að njóta þess. Hann geymdi margar fötur, með morðverkfærum, hér og þar um landið. Það gerði hann til þess að geta farið að næsta felustað og sótt „morðútbúnaðinn“ þegar morðþörf sótti á hann.

Ein af fötunum sem Israel hafði komið fyrir víða um landið.

 

 

 

 

 

 

Samtímis lifði hann venjulegu lífi sem atvinnurekandi með kærustu og barn. En morðin kostuðu peninga og hann vildi ekki taka peninga úr fyrirtækinu, það væri ábyrgðarlaust. Þess vegna rændi hann marga banka og stal frá fórnarlömbum sínum.

Það var eins og hann nyti þess að segja frá morðunum, eins og hann væri að endurupplifa þau.

Lík Samantha tekið upp úr vatninu.

 

 

 

 

 

 

Lögreglumennirnir spurðu hann hversu lengi hann hefði verið þessir tveir ólíku persónuleikar. Hann hló og sagði að þetta hafi hafist þegar hann var 18 ára. Þá hvarf 12 ára stúlka, sem bjó í hverfinu hans, og hefur hún aldrei fundist.

Hann sagði frá þremur morðum og gaf í skyn að hann hefði miklu fleiri á samviskunni. En lögreglan komst ekki lengra því fjölmiðlar höfðu komist á snoðir um mál Keyes og fjölluðu um það og þá þagnaði hann.

Síðasta drápið

Lögreglan hafði nú aflað nægra sannana til hægt væri að gefa út ákæru en það tókst ekki því Keyes átt eftir að ljúka við síðasta drápið.

Þann 2. desember 2012, tæpu ári eftir morðið á Samantha smyglaði Keyes rakvélablaði inn í klefann sinn. Hann skar síðan báða úlnliðina og hengdi sig í lakinu sínu. Hann vildi vera viss um að deyja.

Hann skildi eftir sig sjálfsvígsbréf þar sem hann lofsamaði morðin sem hann framdi og teikningu af djöfli, umkringdum 11 höfuðkúpum. Hvort þetta á að tákna fjöldann sem hann myrti, það veit enginn nema Keyes og hann er ekki lengur til frásagnar.

#hún #kaffibarnum #kvöldvaktina #síðasti #átti


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/pressan/2026/5/23/hun-atti-kvoldvaktina-kaffibarnum-sidasti-vidskiptavinurinn-hafdi-illt-hyggju/

📰 Aðrar fréttir

Neyðarástandi vegna þurrka lýst yfir í þremur löndum Mið-Ameríku
📅 26.08.2026 👁️ 0
Neyðarástandi vegna þurrka lýst yfir í þremur löndum Mið-Ameríku
Yfirvöld í El Salvador hafa lýst yfir neyðarástandi vegna mikilla þurrka undanfarið. Almannavarnir El Salvador hafa gefið úr rauða viðvörun vegna hita...
Búast má við töfum á umferð vegna malbikunarframkvæmda
📅 26.08.2026 👁️ 1
Búast má við töfum á umferð vegna malbikunarframkvæmda
Til stendur að malbika framhjáhlaup og tengingar við Hringveg, Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut milli klukkan 9 og 16 í dag, miðvik...
As Ukraine hits Russia's refineries, Russia targets Ukraine's petrol pumps
📅 25.08.2026 👁️ 2
As Ukraine hits Russia's refineries, Russia targets Ukraine's petrol pumps
Fuel companies are urging customers not to linger at the pumps after a wave of deadly attacks.
Þyrluútköllum fjölgað veru­lega milli ára - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Þyrluútköllum fjölgað veru­lega milli ára - Vísir
„Það er náttúrulega ákveðinn kostnaður við að reka flugdeild Landhelgisgæslunnar og ef það fara fleiri flug, þá verður hann minni á hverja flogna kluk...
Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun - Vísir
„Ég vissi ekki að þetta væri til fyrir svona viku,“ sagði Tómas Geir í kvöldfréttum Sýnar en rætt var við hann í beinni útsendingu. „Þetta er víðavang...
Nicotine vapes best chance to quit smoking, major review finds
📅 25.08.2026 👁️ 1
Nicotine vapes best chance to quit smoking, major review finds
They work better than patches, gum or pills, the most up-to-date evidence suggests.
Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 1
Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði - Vísir
Í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar frá Þórshöfn var rætt við Jóhann Hafberg Jónasson, oddvita Langanesbyggðar, en um aldarfjórðungur er frá því ...
The backlash Pride faces from inside and outside the LGBT community
📅 25.08.2026 👁️ 2
The backlash Pride faces from inside and outside the LGBT community
Big companies used to go out of their way to support Pride. Now, there's a nervousness in the air, Darren Milby writes
UK weather: Met Office warnings in force amid thunderstorm and flood risk
📅 25.08.2026 👁️ 2
UK weather: Met Office warnings in force amid thunderstorm and flood risk
Torrential downpours will affect parts of England and Wales, delivering some of the wettest weather in several weeks
Winter energy prices expected to rise to three year high
📅 25.08.2026 👁️ 2
Winter energy prices expected to rise to three year high
Millions of households will be affected by an increase in the energy price cap by regulator Ofgem.
Arnar Eggert: „Risi er fallinn“
📅 25.08.2026 👁️ 2
Arnar Eggert: „Risi er fallinn“
„Ekki það að maður hafi ekki átt von á þessu, hún var orðin 80. En ég fékk bara vá ókei, risi er fallinn.“Þetta voru fyrstu viðbrögð Arnars Eggerts Th...
Erfiðast að horfa upp á mann­eskju deyja og geta ekkert gert - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Erfiðast að horfa upp á mann­eskju deyja og geta ekkert gert - Vísir
„Ég get ekki sagt að gærdagurinn hafi verið besti vinnudagur lífs míns,“ segir Auðdís Tinna um atvikið í færslu á Facebook-síðu sinni en hún, ásamt fj...
Flutningar hertogahjónanna setja allt á hliðina og sögusagnir eru farnar á kreik
📅 25.08.2026 👁️ 2
Flutningar hertogahjónanna setja allt á hliðina og sögusagnir eru farnar á kreik
Hertogahjónin Harry Bretaprins og Meghan Markle hafa ákveðið að flytja aftur til Bretlands. Eftir að fréttir bárust af fyrirhuguðum flutningum hjónann...
„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“ - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“ - Vísir
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, óttast að allt of mikill tími, athygli og fjárráð fari í aðildarviðræður við Evrópusamb...
Segir framsetningu meirihlutans óheiðarlega - „Neita að sitja undir því“
📅 25.08.2026 👁️ 2
Segir framsetningu meirihlutans óheiðarlega - „Neita að sitja undir því“
Alexandra Briem, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, telur skýringar meirihlutans í borgarstjórn á uppsögnum skólaliða óheiðarlegar en borgarstjóri og ...
Heiða Björg segir tillögurnar hafa skaðleg áhrif á þjónustu við íbúa borgarinnar
📅 25.08.2026 👁️ 2
Heiða Björg segir tillögurnar hafa skaðleg áhrif á þjónustu við íbúa borgarinnar
Fulltrúar Samfylkingar í borgarráði lögðu fram bókun á aukafundi borgarráðs í morgun, þar sem umfangsmiklar breytingartillögur í rekstri borgarinnar v...
Egill Almar segir Ísland hafa nær ekkert vaxið í tíu ár – Frosti segir Póllandsdæmið fella evrurökin um sjálf sig
📅 25.08.2026 👁️ 2
Egill Almar segir Ísland hafa nær ekkert vaxið í tíu ár – Frosti segir Póllandsdæmið fella evrurökin um sjálf sig
Egill Almar Ágústsson hagfræðingur segir íslenska hagkerfið ekki laða að sér næga erlenda fjárfestingu og of fá hálaunastörf verða til – Frosti Logaso...
Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 1
Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly - Vísir
Trump greinir frá þessu í færslu á miðlinum Truth Social og segir að fráfall Parton sé „sannur missir fyrir milljónir manna.“ Dolly Parton lést í dag ...
Almenningur býr sig undir enn erfiðara efnahagsástand
📅 25.08.2026 👁️ 2
Almenningur býr sig undir enn erfiðara efnahagsástand
Langar raðir mynduðust við bensínstöðvar í höfuðborg Írans í dag vegna efnahagsaðgerða sem Bandaríkjamenn boðuðu í gær. Íbúar búa sig undir enn meira ...
Ari í 15 mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu - „Heldurðu að ég muni ekki eftir þér þarna heimska tussan þín“
📅 25.08.2026 👁️ 2
Ari í 15 mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu - „Heldurðu að ég muni ekki eftir þér þarna heimska tussan þín“
Akureyringurinn Ari Rúnarsson, sem er fæddur árið 1990, hefur verið dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir frelsissviptingu, brot gegn vald...
„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ - Vísir
„Vissulega var þetta erfiður dagur og það er alltaf þungt að taka svona erfiðar ákvarðanir en við erum að umbylta stjórnskipulagi velferðarsviðs og sk...
Fjöru­tíu og eitt þúsund þegar greitt at­kvæði - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Fjöru­tíu og eitt þúsund þegar greitt at­kvæði - Vísir
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir kjörsókn hafa verið góða og mikla utan kjörfundar. Í dag hafi hjá öllum sýslumönnum, s...
Þurfa að fræsa upp kílómetra langt klæðingarlag við Kaldármela
📅 25.08.2026 👁️ 2
Þurfa að fræsa upp kílómetra langt klæðingarlag við Kaldármela
Fræsa þarf upp nýlega lagt klæðingarlag á um eins kílómetra löngum kafla Snæfellsvegar við Kaldármela og leggja að nýju eftir að það skemmdist.Bæjarst...
Nei-hliðin: Kúabóndi telur undanþágur mögulegar en aðild óþarfa
📅 25.08.2026 👁️ 2
Nei-hliðin: Kúabóndi telur undanþágur mögulegar en aðild óþarfa
Herdís Magna Gunnarsdóttir, kúabóndi á Egilsstöðum, telur mögulegt að hægt væri að fá undanþágu fyrir íslenskan landbúnað ef til aðildarviðræðna við E...
Kallar eftir samfélagsátaki til að minnka drykkju unglinga – „Við höfum sofnað á verðinum“
📅 25.08.2026 👁️ 2
Kallar eftir samfélagsátaki til að minnka drykkju unglinga – „Við höfum sofnað á verðinum“
Félagsmiðstöðvar eru lokaðar þegar ungmenni þurfa mest á þeim að halda, segir móðir barns í unglingadeild. Formaður foreldrafélags um unglingadrykkju ...
Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman - Vísir
Hildur Yeoman hannar föt fyrir konur af öllum stærðum og gerðum og leggur metnað í að skapa umhverfi sem rúmar alla. Tónlist hefur alltaf skipað stóra...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski
📅 25.08.2026 👁️ 2
Sigvaldi Einarsson skrifar: Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski
Á laugardaginn ætla ég að segja já. Ekki mín vegna, heldur miklu fremur fyrir börnin mín og barnabörnin.Í mínum huga er röðin skýr: Ég er Evrópubúi nú...
Fullyrðingar um 50 milljarða kostnað við ESB standast ekki samanburð
📅 25.08.2026 👁️ 2
Fullyrðingar um 50 milljarða kostnað við ESB standast ekki samanburð
Fullyrðingar um 50 milljarða kostnað við ESB standast ekki samanburð And­stæð­ing­ar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa full­yrt að kostn­að­ur vegna að­ild­a...
Fokdýrar framkvæmdir framundan
📅 25.08.2026 👁️ 2
Fokdýrar framkvæmdir framundan
Mikið kapp er lagt á að Akureyrarkirkja skarti sínum allra besta búningi árið 2040 þegar hún verður 100 ára. Mikið viðhald er á döfinni sem gæti reyns...
„Það er ekkert við þetta mann­úð­legt“ - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
„Það er ekkert við þetta mann­úð­legt“ - Vísir
Breytingarnar á skipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs leiða til uppsagna áttatíu og sex starfsmanna en af þeim fá þrjátíu og tveir boð ...
Spanish government says sorry to people of Ceuta for migrant crisis
📅 25.08.2026 👁️ 2
Spanish government says sorry to people of Ceuta for migrant crisis
Several thousand migrants remain in the enclave after a mass crossing from Morocco in late July.
Dolly Parton er látin
📅 25.08.2026 👁️ 2
Dolly Parton er látin
Tónlistarkonan og goðsögnin Dolly Parton er látin, 80 ára að aldri. Það var frændi hennar Bryan Seaver sem greindi frá andlátinu á Instagram. Bryan ti...
Bolli Héðinsson skrifar: Hverjir eru valkostirnir?
📅 25.08.2026 👁️ 2
Bolli Héðinsson skrifar: Hverjir eru valkostirnir?
Kosningarnar snúast um að halda dyrum opnum með því að segja JÁ eða skella í lás með því að segja nei. Seinna fáum við tækifæri til að segja af eða á ...
„Við erum að sjá á eftir mjög hæfu starfsfólki“
📅 25.08.2026 👁️ 2
„Við erum að sjá á eftir mjög hæfu starfsfólki“
Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem leiða til uppsagna 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi ...
Simmi Vill varpar sprengju inn í Nei-hreyfinguna: „Mér fannst það gaaaalið “
📅 25.08.2026 👁️ 2
Simmi Vill varpar sprengju inn í Nei-hreyfinguna: „Mér fannst það gaaaalið “
Athafna- og fjölmiðlamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, Simmi Vill, segir að það slái sig illa að fá ekki að sjá samning um aðild Íslands að Evrópusambandi...
Rafmagnslaust á hluta Suðurnesja
📅 25.08.2026 👁️ 2
Rafmagnslaust á hluta Suðurnesja
Rafmagnslaust er á hluta Suðurnesja eftir að þrjár háspennulínur Landsnets leystu út um klukkan fjögur síðdegis.Í tilkynningu Landsnets segir að útslá...
Segir fullljóst að málið hefði þurft lengri afgreiðslu
📅 25.08.2026 👁️ 2
Segir fullljóst að málið hefði þurft lengri afgreiðslu
Tæplega 90 starfsmönnum Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp. Tekin var ákvörðun um málið á aukafundi borgarráðs í morgun.Pétur Marteinsson, oddviti...
Gagn­rýna vinnu­brögð meiri­hlutans: „Allt stefnir í hrylli­legt haust” - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Gagn­rýna vinnu­brögð meiri­hlutans: „Allt stefnir í hrylli­legt haust” - Vísir
Borgarráð samþykkti í dag skipulagsbreytingarnar á aukafundi borgarráðs en þær leiða til uppsagnar 86 starfsmanna borgarinnar, þar sem 32 munu fá boð ...
Dolly Parton: The life of a legendary country singer
📅 25.08.2026 👁️ 2
Dolly Parton: The life of a legendary country singer
Iconic country musician Dolly Parton has died at the age of 80, her family announced on her social media.
Dolly Parton: The life of an iconic country singer
📅 25.08.2026 👁️ 1
Dolly Parton: The life of an iconic country singer
Iconic country musician Dolly Parton has died at the age of 80, the singer's team announced on social media.
Kvöld­fréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um upp­sagnir - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Kvöld­fréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um upp­sagnir - Vísir
Naumur meirihluti er fyrir viðræðum við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem við segjum frá. Þá hittum við sýslumanninn á höfuðborgarsvæð...
Spjallið með Frosta Logasyni | Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár
📅 25.08.2026 👁️ 2
Spjallið með Frosta Logasyni | Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár
Spjallið með Frosta LogasyniEgill Almar Ágústsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif sín um íslenska krónu, verðtryggingu, vexti og ha...
Ísraelar hertaka skóla Sameinuðu þjóðanna
📅 25.08.2026 👁️ 2
Ísraelar hertaka skóla Sameinuðu þjóðanna
Ísraelar hertaka skóla Sameinuðu þjóðanna Skóli flótta­manna­hjálp­ar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem veit­ir 340 Palestínu­mönn­um starfs­mennt­un á hverj...
Nauðgun á Akureyri: „Ég var ekki að spyrja þig hvað þú vilt gera, ég var að segja þér hvað þú átt að gera“
📅 25.08.2026 👁️ 2
Nauðgun á Akureyri: „Ég var ekki að spyrja þig hvað þú vilt gera, ég var að segja þér hvað þú átt að gera“
Björn Ingi Helgason hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir hrottalega nauðgun sem hann framdi í heimahúsi á Akureyri í apríl árið 20...
Eigandi San Francisco 49ers og Leeds United gripinn við vændiskaup – Þetta borgaði hann fyrir vændið
📅 25.08.2026 👁️ 1
Eigandi San Francisco 49ers og Leeds United gripinn við vændiskaup – Þetta borgaði hann fyrir vændið
Jed York, eigandi NFL liðsins San Francisco 49ers var handtekinn fyrir vændiskaup. Hann játaði á sig brotið, fékk stuttan fangelsisdóm og sektargreiðs...
Kolsvört skýrsla um fjárhag Hveragerðisbæjar – Á aðeins 100 þúsund krónur á bók
📅 25.08.2026 👁️ 2
Kolsvört skýrsla um fjárhag Hveragerðisbæjar – Á aðeins 100 þúsund krónur á bók
Nýtt árshlutauppgjör Hveragerðisbæjar sýnir kolsvarta fjárhagsstöðu bæjarins. Lausafjárstaðan er aðeins 100 þúsund krónur og hefur bærinn þurft að rei...
Dolly Parton látin
📅 25.08.2026 👁️ 2
Dolly Parton látin
Kántrísöngkonan Dolly Parton er látin. Bandaríski fjölmiðilinn TMZ greinir frá.Fréttin verður uppfærð.
Dolly Parton látin - Vísir
📅 25.08.2026 👁️ 2
Dolly Parton látin - Vísir
Söngkonan Dolly Parton er látin 80 ára gömul. 
Canada announces 'dollar-for-dollar' retaliatory tariffs on US as high as 50%
📅 25.08.2026 👁️ 2
Canada announces 'dollar-for-dollar' retaliatory tariffs on US as high as 50%
The latest escalation in an ongoing trade war between the US and Canada will see new levies on goods from steel to furniture, fresh tuna and makeup.
Ísraelsk landnemabörn réðust á blaðamenn
📅 25.08.2026 👁️ 2
Ísraelsk landnemabörn réðust á blaðamenn
Ísraelsk landnemabörn réðust á blaðamenn Land­töku­fólk frá Ísra­el beitti of­beldi þeg­ar aktív­ist­ar reyndu að opna Palestínu­mönn­um leið inn í he...