Tveir franskir unglingar, 16 ára piltur og 15 ára stúlka, hafa verið ákærð fyrir manndráp í borginni Rennes í vesturhluta landsins. Þau kyrktu 11 ára dreng sem þau sögðu hafa stolið veiðibúnaði af sér.
Franska blaðið Le Parisien greinir frá þessu.
Litli drengurinn, Théo, fannst látinn í runna við bakka árinnar Vilaine á sunnudag. Handklæði var vafið utan um hálsinn á honum.
Veiðimaður heyrði öskrin í Théo og hringdi á neyðarlínu. Lögreglan fann líka hans svo um 10 mínútum seinna. Endurlífgun var reynd en var árangurslaus. Krufning sýnir að Théo lést úr súrefnisskorti.
Tveir unglingar, 16 ára piltur og 15 ára stúlka, voru handtekin í tengslum við málið og komu fyrir dómara í dag, miðvikudag. En þau höfðu sést á hlaupum frá staðnum þennan dag. Pilturinn hafði kynnst Théo degi áður við veiði í ánni. Óvíst er hvort stúlkan hafi þekkt hann.
Að sögn saksóknara höfðu unglingarnir sagt að Théo hefði stolið veiðibúnaði af þeim. Þau vildu hefna sín á honum og fá búnaðinn til baka. Verðmæti hans var í kringum 10 evrur, eða 1.500 krónur. Veiðibúnaður Théo fannst við húsleit á heimili unglinganna.