Mælingar hófust á Svínafellsheiði fyrir átta árum eftir að 1,7 kílómetra langt sprungukerfi varð að fullu ljóst. Frá því hafa hreyfingar verið mjög litlar og heildarfærsla á síritandi mælitækjum verið innan við einn sentímetri, þar til 23. september síðastliðinn. Síðan þá hefur aflögunin mælst einn til þrír sentimetrar.
„Ekki hefur mælst færsla á öðrum GPS-stöðvum á og í nágrenni Öræfajökuls sem bendir eindregið til þess að hreyfingarnar séu staðbundnar í Svínafellsheiði og engin merki hafa komið fram um tengsl við breytingar á eldstöðinni,“ segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar.
Ekki bráð hætta
Hreyfingarnar séu hægar og bendi ekki til bráðrar hættu á berghlaupi. Slíkar breytingar á hreyfihraða séu ekki óþekktar og á þessu stigi sé ekki hægt að segja með vissu hvernig þróunin verður.
„Miðað við fyrirliggjandi gögn er ekki talin vera bráð hætta á berghlaupi, en það mat getur breyst ef frekari breytingar verða á mældum hreyfingum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á stöðugleika svæðisins. Að mati sérfræðinga kalla þær hreyfingar sem nú hafa mælst ekki á sérstakan viðbúnað að svo stöddu, umfram aukna vöktun, greiningu og eftirfylgni af hálfu Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands. Sú niðurstaða var tekin í samráði við Almannavarnir og Lögregluna á Suðurlandi,“ segir í tilkynningunni.
Skoða að endurmeta hættumat
Líklegast er að berghlaup sem félli úr hlíðinni og á jökulinn myndi stöðvast á jöklinum og ekki ná í lónið fyrir framan sporð hans og því ekki ógna byggð.
„Ekki er þó hægt að útiloka að mjög stórt hlaup nái niður að jökuljaðrinum og hugsanlega í lónið og geti valdið flóði. Hættumatið byggir á líkanreikningum frá 2018 til 2020 og verið er að skoða hvort endurmeta þurfi það í ljósi nýrra gagna,“ segir í tilkynningunni.
Ætla á vettvang
Mögulegt er að aukinn vatnsþrýstingur innan fjallsins sé að valda hreyfingunum. Úrkoma hefur mælst yfir meðallagi og hopun jökla hefur áhrif á stöðugleika hlíða fyrir ofan þá.
„Fyrirhugað er að fara á vettvang þegar aðstæður leyfa, mæla fasta mælipunkta, taka myndir með dróna og yfirfara mælibúnað. Einnig er til skoðunar að bæta við GPS-mælistöð til að fá betri yfirsýn yfir hreyfingarnar. Veðurstofan hefur upplýst almannavarnir um stöðuna og er í samráði við þær um næstu skref og upplýsingagjöf til íbúa,“ segir í tilkynningunni.