Starfsfólk á SoFi-leikvanginum í Los Angeles hefur með yfirgnæfandi meirihluta samþykkt mögulegt verkfall meðan á heimsmeistaramótinu stendur.
Stéttarfélag á svæðinu, sem er í forsvari fyrir 2.000 starfsmenn, krefst hærri launa og tryggingar fyrir því að útlendingaeftirlitinu ICE verði ekki hleypt inn á leikvanginn.
Að sögn stéttarfélagsins ætti starfsfólki að vera heimilt að ganga út af vinnustað ef fulltrúar ICE mæta á leikvanginn og skapa „ótta um öryggi þeirra“.
Starfsmenn leikvanganna lýsa einnig yfir áhyggjum af því að vera neyddir til að deila persónuupplýsingum sínum með FIFA og að gögnunum verði deilt með ICE.
Sofi-leikvangurinn rúmar um 100.000 manns og verða átta leikir leiknir á honum.
Heimsmeistaramótið hefst á fimtudaginn er Mexíkó tekur á móti Suður-Afríku.