Tveir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa en málið var tilkynnt lögreglunni á stöð 1 um miðnætti í gær, sunnudaginn 19. júlí. Þetta staðfestir Erna Dís Gunnarsdóttir, aðalvarðstjóri á stöð 1, sem sinnir meðal annars verkefnum í miðborg Reykjavíkur.
Ekki liggur fyrir hver líðan árásarþola er en staðfest er að hníf var beitt í árásinni. Hann var fluttur af vettvangi á bráðamóttöku Landspítalans til athugunar og aðhlynningar.
Málið er komið inn á borð miðlægrar rannsóknardeildar en það staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við blaðamann.