Verðmæti hlutabréfa í Alvotech minnkaði hratt við opnun markaða í dag eftir að fyrirtækið sendi frá sér uppgjör vegna fyrsta ársfjórðungs í gær. Um klukkan ellefu var hlutabréfaverðið níu prósentum lægra en í gær.
Tekjur Alvotech voru 105,9 milljónir dollara fyrstu þrjá mánuði ársins, 27 milljónum minni en á sama tíma í fyrra þegar þær voru 133 milljónir.
Fyrirtækið greindi frá því í gær að það gerði ráð fyrir að heildartekjur ársins yrðu 650 til 700 milljónir dollara.