Sjálfboðaliðar Náttúruverndarstofnunar, undir handleiðslu landvarða, hlóðu á dögunum pall við Gatklett í Dimmuborgum sem er sérstaklega ætlaður fyrir sjálfsmyndatökur. Pallurinn er um 50 til 60 sentímetra hár. Með þessari hækkun geta gestir Dimmuborgar auðveldlega smellt af sér mynd með spírur Hallarflatar, rammaðar inn af gatinu í klettinum, í bakgrunni.
Dimmuborgir eru vinsæll áfangastaður ferðamanna í Mývatnssveit. Þær voru friðlýstar 2011 vegna sérstakra hraunmyndana og landslags.
Færst hefur í aukana að fólk klifri þar upp á steina og leiti að stöðum utan stíga til að ná sem bestri sjálfu.
„Við það hafa orðið skemmdir á gróðri og jarðmyndunum en jafnframt hefur slysahætta verið töluverð. Og hér nálgumst við kjarna landvörslunnar, að vernda náttúruna fyrir fólki en ekki síður að vernda fólk fyrir náttúrunni,“ segir á vef stofnunarinnar.
Síðasta sumar var sjálfupallur settur upp við Kálfastrandarstrípa, í næsta nágrenni við Gatklett. Á vef Náttúruverndarstofnunar segir að pallurinn sé strax farinn að sanna gildi sitt. Afleiðingar af traðki á gróðri og hraunmyndunum hafi þegar gengið til baka.