Hlé var gert á þingfundi nú á fjórða tímanum eftir að mótmælendur trufluðu fundinn með hrópum og lúðrablæstri af þingpöllum.
Þingmenn voru þá að ræða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöðvar, þar sem á að vista útlendinga áður en þeim er vísað úr landi.
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, var nýstiginn í pontu þegar mótmælendur hófu að blístra og kalla af þingpöllum.
Erfitt að heyra orðaskil en ljóst að mótmælandinn segir þingmönnum að skammast sín. Ingvar Þóroddsson, einn af varaforsetum þingsins sem stýrði þingfundi, var fljótur að hringja bjöllunni og tilkynna að fundi hefði verið frestað. Skömmu síðar var lokað fyrir hljóð og mynd á þingrásinni.
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis voru mótmælendurnir þrír eða fjórir talsins og var þeim vísað af þingpöllunum án þess að til átaka kæmi. Þeir halda nú mótmælum áfram fyrir utan þingsalinn.
Fundarhléð stóð í um tíu mínútur áður en Snorri fékk að halda ræðunni áfram. Hann sagði miður að fámennur hópur fólks hefði tekið ákvörðun um að raska starfsfriði þingsins. Taldi hann mótmælin vera til marks um þann misskilning sem er ríkjandi um innihald frumvarpsins, til að mynda stöðu barna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mótmælendur trufla þingfund þegar málefni hælisleitenda eru til umræðu í þinginu. Fyrir tveimur árum klifraði mótmælandi yfir handriðið á þingpöllum og gerði hróp að þáverandi dómsmálaráðherra þegar hún mælti fyrir frumvarpi til breytinga á útlendingalögum.