Björgunarfólki og almenningi hefur verið sagt að fara í öruggt skjól í Nepal vegna flóðahættu. Nepalski herinn segir að búið sé að bjarga 900 á þeim svæðum sem urðu hvað verst úti í hamfaraflóðinu. Þar á meðal voru yfir eitt hundrað ferðamenn.
Kínverskur ríkisfjölmiðill CCTV segir að búið sé að bjarga 499 íbúum og 555 ferðamönnum og fólkið hafi verið flutt af hamfarasvæðinu. Að minnsta kosti 550 er saknað í Tíbet.
Yfirvöld í Nepal segja að 475 hafi farist í Rasuwa-héraði. Kínversk yfirvöld hafa staðfest að þrír hafi látist í flóðunum.
Nepalski herinn reynir nú að bjarga um eitt hundrað sem eru fastir í göngum nærri vatnsaflsvirkjun sem varð undir flóðinu. Búið er að bjarga um 350 voru við störf í göngunum þegar flóðið féll.
Hamfarirnar hafa mikil efnahagsleg áhrif enda tjónið umfangsmikið. Breska ríkisútvarpið segir að 80 brýr séu eyðilagðar og um 40 kílómetrar af vegum. Margir þessara vega eru mikilvæg flutningsleið milli Nepal og Kína, sem er önnur stærsta viðskiptaþjóð Nepala.