„Nýliðna helgi var ég gangandi út úr verslun Bónus þegar ég var næstum keyrður niður af svörtum krossara. Það munaði sentímetrum. Hann var á eflaust u.þ.b. 60 km/klst. Ökumaðurinn var unglingur og ekki í hefðbundnum hlífðarfatnaði. Ég horfði á eftir honum keyra niður gangstéttina þar sem hann prjónaði með vinum sínum,“
segir Hjörvar Sigurðsson tölvunarfræðingur í grein sinni á Vísi.
Segir hann atvikið ekki einsdæmi því undanfarna mánuði hafi hann orðið var við vaxandi fjölda unglinga á svörtum krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins. Iðulega sé hópur slíkra mótorhjóla í hóp fyrir framan Smáralindina og hann sjá þá reglulega fyrir utan KFC nálægt heimili sínu og að sjálfsögðu fyrir utan Bónus.

Segir Hjörvar að honum þyki áhugavert hversu lítil umræða hefur verið um þessa þróun.
„Er lögreglan hætt að skipta sér af svona löguðu? Ég keyrði sjálfur um á krossara þegar ég var krakki og unglingur aldrei hefði mér dottið í hug að keyra þá um gangstéttir bæjarins. Það var stutt vegalengd frá heimili mínu yfir á malarvegina burt frá bænum og maður óttaðist alltaf að vera gómaður þessa mínútu sem tók að keyra út úr bænum. Það var ekki að ástæðulausu enda skipti lögreglan sér af.“
Segist hann muna vel eftir umræðunni þegar vespurnar urðu vinsæll fararmáti meðal unglinga og þegar rafmagnshlaupahjólin tóku við af þeim.
„Er fólk bara búið að gefast upp? Er ekki nóg með það að á göngustígum þurfi maður að eiga von á því að rafmagnshjól þjóti fram úr manni á 40 km/klst eða 35 kg hlaupahjól ekið af fólki í misgóðu ástandi heldur eigum við nú að gefa eftir göngustígana níðþungum krossurum á 60-80 km/klst?“
Vill Hjörvar umræðu um málið og átak meðal lögreglunnar.
„Ég kalla eftir því að foreldrar sem kaupi 60 kg rafmagnskrossara handa börnum án þess að tryggja að hjólið verði ekki notað innanbæjar séu tjargaðir og fiðraðir á torgi bæjarfélagsins á föstudagskvöldum.“
Segir Hjörvar að ef hann eigi að enda í rafmögnuðum hjólastól, lamaður fyrir neðan háls, þá þætti sér vænt um að það sé vegna „einhvers aðeins virðulegra en að vera keyrður niður af barnungum dreng á móturhjóli í þykjustuleik þess eðlis að hann sé einhver gengisstrákur í Chicago árið 2023. Náið stjórn á börnunum ykkar.“