Óhætt er að segja að hjónin Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason hafi lagt mikið á sig fyrir lýðræðið þegar þau ferðuðust á tveimur dögum fyrr í vikunni í öll kjördæmi landsins. Réðust þau í þetta ferðalag til að koma á þriðja tug utankjörfundaratkvæða frá Íslendingum sem kusu á Kanaríeyjum til skila í tæka tíð fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun. Ef þau hefðu ekki gert það þá er ólíklegt að atkvæðin hefðu verið með í talningunni. Segir Kristín ljóst að bæta þurfi til muna allt ferlið þegar kemur að utankjörfundaratkvæðum sem berast frá Íslendingum erlendis.
Hjón ferðuðust í öll kjördæmi landsins til að koma atkvæðum til skila í tæka tíð - „Þetta er snúið ferli“